Tjörvi Týr heim í Val

Tjörvi Týr er genginn í raðir Vals eftir tvö ár í atvinnumennsku.

Tjörvi er uppalinn í Valsheimilinu og spilaði með yngri flokkum félagsins auk þess að spila með meistaraflokki félagsins áður en hann hélt á vit ævintýra í Þýskalandi síðustu ár.

Tjörvi á glæstan feril með félaginu og hefur unnið meðal annars bikar, Íslands og Evróputitil með meistaraflokki félagsins.

”Ég er gríðarlega ánægður með að fá Tjörva aftur heim. Hann er frábær leikmaður sem mun styrkja liðið mikið á báðum endum vallarins. Að auki er hann mikill leiðtogi. Hann á eftir að koma með mikil gæði og góða orku inn í okkar leikmannahóp. Það verður gaman að sjá hann aftur í Valstreyjunni” sagði Ágúst Jóhannsson þjálfari liðsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top