Framkvæmdir við nýja Þjóðarhöll í Laugardal eiga að hefjast í haust og samkvæmt núverandi áætlunum verður mannvirkið tilbúið til notkunar á vormánuðum árið 2030. Þá er stefnt að því að höllin verði vettvangur alþjóðlegra íþróttaviðburða, þar á meðal heimsmeistaramóts karla í handbolta árið 2031. Nýverið var tilkynnt að teymi Íslenskra aðalverktaka hf. hefði borið sigur úr býtum í samkeppnisútboði um verkefnið og mun fyrirtækið annast framkvæmdina frá hönnun til afhendingar fullbúins mannvirkis. Að sögn Helga Geirharðssonar, verkefnastjóra Þjóðarhallar ehf., verður unnið að frágangi samninga og öðrum formlegum þáttum verkefnisins yfir sumarmánuðina áður en framkvæmdir hefjast þegar líður á haustið. Enn ríkir nokkur óvissa um endanlegan kostnað og framkvæmdatíma, en ljóst er að bílastæðum á svæðinu gæti fækkað verði gildandi deiliskipulag óbreytt. Samkvæmt skipulagstillögu Reykjavíkurborgar frá mars 2024 er ekki gert ráð fyrir nýjum bílastæðum við Þjóðarhöllina og mun hluti núverandi stæða víkja fyrir stækkuðum byggingarreit. Helgi bendir á að það sé á valdi borgaryfirvalda að ákveða hvort fjölga eigi bílastæðum á svæðinu. „Það eru tækifæri til þess að búa til ný bílastæði þarna í kring þannig að það er bara ákvörðunarmál hjá borginni sjálfri hvort og hvernig þeir vilja bæta við bílastæðum á þau auðu svæði sem þarna eru til staðar," sagði Helgi í viðtali við MBL. Framkvæmdaáætlanir Þjóðarhallarinnar hafa tekið nokkrum breytingum frá því að ríkið og Reykjavíkurborg undirrituðu viljayfirlýsingu um verkefnið árið 2022. Í upphafi var gert ráð fyrir að höllin yrði tekin í notkun árið 2025. Síðar var þeirri tímasetningu frestað og fyrir tveimur árum var reiknað með að framkvæmdir hæfust það ár. Í fjárlögum fyrir tímabilið 2026–2030 var miðað við að höllin yrði tilbúin síðla árs 2028. Í nýjustu fjármálaáætlun hefur hins vegar verið horfið frá þeirri nákvæmu tímasetningu og einungis gert ráð fyrir að mannvirkið verði tekið í notkun einhvern tíma á áætlunartímabilinu. Nú vonast framkvæmdaraðilar til að Þjóðarhöll verði fullgerð vorið 2030. Ítarlegra má lesa um málið á vef MBL.is.


Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.