Snorri segir að Ísland eigi og geti unnið riðil sinn á HM
Sævar Jónasson

Í síðustu viku var dregið í riðla fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Ísland dróst þar í riðil með Japan, Barein og Norður-Makedóníu, en þrjú efstu lið riðilsins fara áfram í milliriðla.

Leikir Íslands í riðlinum fara fram í Magdeburg. Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari Íslands, segist sáttur við niðurstöðu dráttarins. Hann viðurkennir að riðillinn hefði bæði getað orðið erfiðari og auðveldari.

„Ég er sáttur með riðilinn, þetta hefði klárlega getað orðið verra en á sama tíma hefðum við eflaust getað fundið eitthvað betra. En ég er bara sáttur,“ sagði Snorri Steinn í samtali við Handkastið.

Leikdagar Íslands á HM

Hann telur Ísland eiga alla möguleika á að fara í gegnum riðilinn með fullt hús stiga, en leggur áherslu á að liðið megi ekki vanmeta verkefnið.

„Þetta er riðill sem við eigum og getum unnið og ég held að það verði mjög líklega skýrt markmið hjá okkur að fara úr þessum riðli með fullt hús stiga. Að því sögðu þurfum við alltaf að fara fyrir hlutunum og ef við gerum það ekki þá lendum við í veseni.“

Japan og Barein hafa ekki verið á meðal þeirra liða sem íslenska landsliðið mætir oft á stórmótum, en Snorri segir slíka andstæðinga geta reynst varasama.

„Ég get alveg viðurkennt það að ég hef ekki séð alla leiki með Japan og Bahrain að undanförnu en það getur alltaf verið óþægilegt að mæta svona liðum. Að því gefnu að við séum fullmannaðir og í góðu standi þá held ég að okkur líði vel með riðilinn.“

Ef Ísland nær markmiði sínu um að taka öll stigin með sér áfram í milliriðil gæti það reynst afar dýrmætt í baráttunni um sæti í átta liða úrslitum. Snorri Steinn vildi lítið tjá sig um það sem koma skyldi eftir að riðlakeppninni lýkur.

„Ef við förum aðeins fram úr okkur og kíkjum á milliriðilinn þá er það eitthvað sem við getum alveg lifað með. Lykilatriðið verður að fara með fullt hús stiga í milliriðilinn. Ef við gefum okkur það að Danir misstígi sig ekki mikið þá held ég að það verði mikilvægt fyrir okkur að misstíga okkur ekki í riðlinum.“

„Ég geri ráð fyrir því að við förum bjartsýnir inn í þetta mót,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top