Breki Hrafn á leið til Benfica
Kristinn Steinn Traustason

Breki Hrafn Árnason markvörður Fram í Olís-deild karla er samkvæmt heimildum Handkastsins á leið til Benfica í Portúgal og mun leika með liðinu á næstu leiktíð. Samkvæmt heimildum Handkastsins er allt frágengið.

Hinsvegar vill portúgalska félagið ekki tilkynna eitt né neitt fyrr en leikmaðurinn hefur komið til félagsins og skrifað undir pappíra í Portúgal.

Hjá Benfica myndar hann markvarðarpar með hinum sænska, Tobias Thulin sem gengur í raðir Benfica í sumar frá Pick Szeged. Þar með eru Benfica að fá tvo markmenn sem léku í Evrópukeppnum í fyrra, Thulin í Meistaradeildinni með Pick Szeged og Breki Hrafn í Evrópudeildinni með Fram.

Breki Hrafn vildi lítið gefa upp í samtali við Handkastið um möguleg vistaskipti sín til Benfica.

,,Ég vil ekki ræða neitt ákveðið félag á þessu stigi. Það eru ákveðnir hlutir sem þarf að klára áður en allt verður endanlega frágengið og framtíð mín skýrist. Það ætti að skýrast fljótlega hvað tekur við, en þangað til vil ég leyfa hlutunum að ganga sinn gang," sagði Breki Hrafn í samtali við Handkastið.

Er Breki Hrafn að yfirgefa Fram?

Breki Hrafn var einn af betri leikmönnum Fram á tímabilinu en hann var með 32,7% markvörslu á tímabilinu hjá Fram en liðið lék einnig í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og lék þar gegn portúgalska félaginu Porto.

Breki Hrafn lék á yngri árum með yngri landsliðum Íslands og hefur verið einn af betri markvörðum Olís-deildarinnar síðustu tímabil.

Um er að ræða mikla blóðtöku fyrir Fram fyrir næstu leiktíð því erfitt verður fyrir Einar Jónsson þjálfara Fram að fylla skarð Breka á þessum árstíma.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top