Er Breki Hrafn að yfirgefa Fram?
Egill Bjarni Friðjónsson

Samkvæmt heimildum Handkastsins gæti farið svo að Breki Hrafn Árnason markvörður Fram yfirgefi félagið í sumar og haldi út í atvinnumennsku.

Breki Hrafn hefur verið í viðræðum við portúgalska félagið Benfica um að ganga í raðir félagsins en miklar breytingar verða á leikmannahópi félagsins í sumar.

Báðir markverðir liðsins yfirgefa félagið þeir, Rangel Da Rosa og Gustavo Capdeville sem gengur í raðir TTH Holstebro í Danmörku.

Sænski landsliðsmarkvörðurinn, Tobias Thulin hefur samið við Benfica og gengur í raðir félagsins frá Pick Szeged og gæti farið svo að Breki Hrafn Árnason myndi markvarðarpar með Svíanum öfluga.

Breki Hrafn var með 32,7% markvörslu á tímabilinu hjá Fram en liðið lék einnig í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og lék þar gegn portúgalska félaginu Porto. Breki Hrafn lék á yngri árum með yngri landsliðum Íslands og hefur verið einn af betri markvörðum Olís-deildarinnar síðustu tímabil.

Hann varð meðal annars Íslands- og bikarmeistari með Fram á þar síðasta tímabili.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top