Gunnar Valur Arason hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Fjölni til næstu tveggja ára. Hann tekur við liðinu af Guðmundi Rúnari Guðmundssyni sem hætti með liðið á dögunum. Gunnar Valur er öllum hnútum innan Fjölnis kunnugur en hann var aðstoðarþjálfari Guðmundar síðasta vetur auk þess sem hann hefur þjálfað kvennaliðið í fjölda ára.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.