Kentin Mahé hefur gengið til liðs við Rhein-Necker Löwen og mun því spila með Hauki Þrastarsyni á næsta ári. Kentin var á mála hjá Gummersbach undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, þar sem Elliði Snær Viðarsson og Teitur Einarsson spila auk þess sem Garðar Ingi Sindrason gengur til liðs við þá í sumar. Mahé hefur orðið Olympíu-, Evrópu- og heimsmeistari með franska landsliðinu og mun hann því styrkja Löwen liðið mikið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.