Embla Heiðarsdóttir hefur gengið til liðs við Stjörnuna og gerir hún samning til tveggja ára. Embla er fædd árið 2008 og kemur til liðsins frá Val. Embla spilar sem skytta og leikstjórnandi ásamt því að vera sterkur varnarmaður. Í tilkynningu frá Stjörnunni segir að hún muni koma til með að styrkja liðið og um leið samrýmist þetta þeirri stefnu Stjörnnunar að ungir leikmenn fái tækifæri til að dafna og þróa leik sinn með Stjörnunni. Embla er þriðji ungi leikmaðurinn sem kemur til liðs við Stjörnuna frá Val en áður höfðu þær Erla Sif Leósdóttir, sem er vinstri hornamaður fædd árið 2007 og Sigrún Erla Þórarinsdóttir, sem er línumaður fædd árið 2008, gengið til liðs við Stjörnuna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.