Íslenska U20 ára liðið lagði Ísrael 35-23 á Evrópumótinu í Rúmeníu í krossspili um sæti 13-16 á mótinu. Strákarnir svöruðu fyrir slæman leik í gær þar sem töpuðu illa fyrir Noregi 27-31. Ísland var með yfirhöndina allan leikinn og voru komnir í mjög góða stöðu fyrir leikhlé en þá var staðan 20-9 fyrir strákunum okkar. Sama var svo á upp á teningnum í seinni hálfleik og greinilegt að ákveðinn getumunur var á liðunum. Stefán Magni Hjartarson var mættur aftur á völlinn eftir veikindi í gær og var markahæstur með 7 mörk. Jens Bragi Bergþóruson kom næstur með 6 mörk. Ingvar Dagur Gunnarsson var með 5 mörk,.Andri Erlingsson, Harri Halldórsson og Bessi Teitsson skoruðu 3 mörk hver. Birgir Leó Stefánsson, Ágúst Guðmundsson, Dagur Leó Fannarsson og Jökull Blöndal Björnsson skoruðu 2 mörk hver. Alexander Ásgrímsson átti stórleik í markinu og var með rúmlega 51% markvörslu. Jens Sigurðarson átti einnig góðan leik með um 35% markvörslu. Strákarnir munu því spila um 13. sætið á morgun þar sem þær mæta annað hvort Króatíu eða heimamönnum í Rúmeníu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.