Gidsel kominn í markið líka
Andreas Gora / AFP

Füchse Berlin hélt áfram undirbúningi sínum fyrir komandi tímabil þegar liðið vann öruggan 57-26 sigur á SG Uckermark í æfingaleik í Schwedt.

Þrátt fyrir að þetta væri þriðji æfingaleikur liðsins á aðeins þremur dögum virtust leikmenn Nicolej Krickau hvergi nærri þreyttir. Þvert á móti buðu þeir áhorfendum í troðfullri Neue Zeit-íþróttahöllinni upp á sannkallaða handboltasýningu.

Þegar sigurinn var orðinn öruggur ákvað Krickau að gera tilraunir með leikmenn í óvenjulegum hlutverkum.

Markvörðurinn Andreas Palicka fékk að taka vítakast en tókst ekki að skora. Línumaðurinn Mijajlo Marsenic færði sig í skyttustöðu og einn besti leikmaður heims, Mathias Gidsel, fór óvænt í markið ásamt Leo Prantner.

Gidsel lét meira að segja til sín taka á milli stanganna og varði nokkur skot, þar á meðal vítakast sem reynt var að lyfta yfir hann.

Nicolej Krickau gerði grín að breytingunum eftir leik.

„Við vorum augljóslega mjög óánægðir með markvörsluna hjá Lasse Ludwig í fyrri hálfleik, þannig að við prófuðum Mathias Gidsel og Leo Prantner í markinu eftir hlé. Það gekk betur, sérstaklega hjá Leo.“

Hann bætti svo við um Palicka:

„Við klúðruðum nokkrum vítaköstum á síðasta tímabili og vildum því prófa Andreas Palicka. Hann sýndi mjög skýrt af hverju hann er ekki lausnin okkar.“

Þjálfarinn tók síðan fram í alvarlegri tón að markmiðið hefði fyrst og fremst verið að skemmta áhorfendum.

„Leikurinn var mjög skemmtilegur. Það var frábært að hitta stuðningsmennina og félögin á svæðinu. Við vonum að við höfum gefið áhorfendum, sérstaklega krökkunum, eftirminnilega upplifun.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top