U18 ára landslið Íslands og Þýskalands mætast í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í Serbíu í dag klukkan 15:00. Leikur Ísland og Þýskalands er sýndur í beinni útsendingu í gegnum https://handball-globe.tv/hgt gegn vægu gjaldi. Ísland er ósigrað á mótinu hingað til en þetta lið hefur leikið alls 22 landsleiki saman og unnið 20 af þeim. Einu tveir tapleikirnir hafa hinsvegar komið gegn þýska landsliðinu en einu sinni hefur íslenska landsliðið unnið það þýska. Það sem vekur athygli er að Ísland hefur mætt tveimur þjóðum á mótinu sem eru komin í 8-liða úrslit keppninnar, Ungverjaland og Króatíu og unnu báða leikina sannfærandi. Ísland vann Ungverjaland í riðlakeppninni með 13 mörkum 41-28 og Króatana í milliriðli, 37-29. 8-liða úrslitin á EM: 15:00 Ísland - Þýskaland Fleiri fréttir tengdar leiknum: ÞJÁLFARI ÞÝSKALANDS SEGIR ÍSLENSKA LIÐIÐ ÞAÐ STERKASTA Á EM HAFA UNNIÐ 20 SIGRA Í 22 LEIKJUM – EINUNGIS TAPAÐ GEGN ÞJÓÐVERJUM
15:00 Spánn - Frakkland
17:30 Danmörk - Króatía
17:30 Slóvenía - Ungverjaland

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.