Rut ráðin aðstoðarþjálfari Hauka

Rut Arnfjörð Jónsdóttir hefur verið ráðin inn í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna hjá Haukum þar sem hún mun aðstoða Stefán Arnarson þjálfara liðsins.

Rut missti af nær öllu síðasta tímabili þar sem hún átti barn fyrr á árinu. Fyrir það var hún lykilmaður í liði Hauka sem vann bikarmeistaratitilinn vorið 2025 og fór í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn sama ár.

Rut er ein allra besta handknattleikskona Íslands fyrr og síðar. Hún er alin upp hjá HK og spilaði þar til 18 ára aldurs. Þar lá leiðin til Danmerkur þar sem hún spilaði í rúm 12 ár með 4 mismunandi félögum. Næst lá leiðin til KA/Þór þar sem hún var frá 2020-2024 og svo gekk hún í raðir Hauka. Fyrir Íslenska landsliðið spilaði hún 117 landsleiki og með 244 mörk.

"Það eru mikil gleðitíðindi að Rut verði áfram á Ásvöllum og miðli af reynslu sinni til leikmanna og styrki teymið í kringum meistaraflokk kvenna til muna enda er Rut ein besta handknattleikskona Íslands fyrr og síðar" segir í tilkynningu frá Haukum í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top