Íslendingafélag í Danmörku leitar af leikmönnum
Guðrún

Handboltafélag Guðrúnar hefur hafið leit að nýjum leikmönnum fyrir komandi tímabil og hvetur áhugasama til að slást í hópinn.

Félagið leitar bæði að leikmönnum í karla- og kvennalið sitt og stefnt er að því að hefja æfingar á næstu dögum.

Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að allir séu velkomnir, hvort sem um sé að ræða reynslumikla handknattleiksmenn, þá sem vilja snúa aftur á völlinn eftir hlé eða einstaklinga sem langar að prófa handbolta í fyrsta sinn.

Handboltafélag Guðrúnar leggur áherslu á að skapa jákvætt og öflugt samfélag þar sem góð stemning, félagsskapur og hreyfing fara saman. Auk æfinga og keppni er einnig lögð áhersla á öflugt félagslíf innan sem utan vallar.

Áhugasamir geta haft samband við Tómas Valgeir Kristjánsson og Telmu Sól Bogadóttur til að fá nánari upplýsingar um æfingar og þátttöku á komandi tímabili.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top