Í gærkvöldi fyrir leik Selfoss og Víking í Ragnarsmóti karla var Árni Þór Grétarsson sæmdur gullmerki Ungmennafélags Selfoss af Sverri Einarssyni varaformanni félagsins. Við sama tilefni var Árni Þór sæmdur gullmerki HSÍ af formanni HSÍ, Jóni Halldórssyni. Stuðningsmenn Selfoss og vinnufélagar Árna Þórs hjá Rarik tóku á móti honum með dynjandi lófataki og hlýjum móttökum er hann kom inn í salinn fyrir leik Selfoss og Víkings í gær. Árni Þór stendur um þessar mundir í baráttu við krabbamein sem hann greindist með á síðasta ári. Myndirnar hér að neðan eru teknar af Sunnlenska.is ,,Fjöldi fólks lagði leið sína í SET Höllina en eins og allir vita hefur Árni Þór verið einn öflugasti sjálfboðaliði handknattleiksdeildarinnar síðustu ár og er hann vel að þessum viðurkenningum kominn," segir á heimasíðu Selfoss. Í desember á síðasta ári var Árni Þór tilnefndur sem eldhugi ársins hjá ÍSÍ en í fyrra var Árni Þór sæmdur silfurmerki Selfoss. Íþróttaeldhugi ársins er valinn úr röðum sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni, sem hafa í gegnum árin nýtt eigin hæfileika, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarfið í sínu nærumhverfi eða á landinu öllu. Röskstuðning fyrir vali Árna Þórs sem eldhuga ársins má sjá hér að neðan en þar er hans störfum fyrir handknattleiksdeild Selfoss lýst: „Árni Þór Grétarsson hefur verið ómetanlegur burðarás í handboltastarfinu á Selfossi í áratugi. Hann er alltaf til staðar, mætir á alla leiki – heima og að heiman – og tekur að sér öll þau verkefni sem þarf að sinna, hvort sem það er lýsing á leikjum, auglýsingagerð, aðstoð við ferðalög eða skipulagningu. Hann gerir þetta allt með jákvæðu hugarfari og brosi á vör. Árni hefur séð um samfélagsmiðla, hlaðvörp, útsendingar á leikjum og verið liðstjóri bæði hjá meistaraflokki og yngri flokkum. Hann ferðast með liðum innanlands og erlendis, tekur þátt í fjáröflunum og er meira og minna í íþróttahúsinu allan daginn. Hann er til fyrirmyndar í samskiptum og hefur haft djúpstæð áhrif á fjölda ungra iðkenda sem líta upp til hans sem fyrirmyndar og leiðtoga. Árni Þór er dæmi um ósérhlífinn einstakling sem vinnur fyrir félagið af eldmóði og einlægri ástríðu. Hann leitar ekki eftir athygli eða hrósi, heldur vinnur af hreinni elju og hjartahlýju. Með dugnaði sínum, einlægni og góðvild hefur hann haft djúpstæð áhrif á íþróttalífið á Selfossi og verðskuldar sannarlega tilnefningu til Íþróttaeldhuga ársins 2025.“



Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.