Livey tekur yfir útsendingar – Gæði útsendinga aukin
Eyjólfur Garðarsson

Handknattleikssamband Íslands, Handboltapassinn og streymisveitan Livey hafa gengið frá samstarfi um útsendingar frá Olís-deildunum næstu leiktíð. Livey tekur við streymi allra leikja deildanna, bæði leikja sem teknir eru upp með sjálfvirkum myndavélum og svokallaðra sjónvarpsleikja.

Samstarfinu fylgja nokkrar breytingar á útsendingum. Endursýningar verða nú í boði frá öllum leikjum og HSÍ segir að gæði útsendinga úr sjálfvirkum myndavélum verði aukin.

Stærsta breytingin fyrir áhorfendur er hins vegar sú að opnum útsendingum fækkar.

Undanfarin tímabil hafa tveir leikir úr hverri viku verið í opinni dagskrá, en frá og með næsta tímabili verður aðeins einn leikur úr hverri umferð sýndur opið á Símanum og Livey. Leikur umferðarinnar mun skiptast á milli Olís-deildar karla og Olís-deildar kvenna þannig að báðar deildir fái sitt pláss yfir tímabilið.

Handboltahöllin verður áfram á sínum stað að loknum leik umferðarinnar og verður í beinni útsendingu á Símanum, Handboltapassanum og Livey.

Handboltapassinn áfram óbreyttur

Handboltapassinn heldur áfram í óbreyttri mynd og þurfa núverandi áskrifendur því ekkert að aðhafast. Nýjungin er að Handboltapassinn verður einnig aðgengilegur í Livey sport-pakkanum.

Með því verður hægt að nálgast allar útsendingar úr Olís-deildunum í gegnum Livey, sem HSÍ og Livey segja að muni gera handboltann aðgengilegan fyrir stærri hóp áhorfenda.

„Við höfum lagt mikla áherslu á að allir leikir í Olís-deildinni séu aðgengilegir áhorfendum og með þessu samstarfi tökum við næsta skref í gæðum. Endursýningar í öllum leikjum og aukin gæði útsendinga úr sjálfvirkum myndavélum eru breytingar sem áhorfendur finna strax fyrir,“ segir Ólafur Víðir Ólafsson, móta- og sjónvarpsstjóri HSÍ.

Hann segir jafnframt mikilvægt að leikur umferðarinnar verði áfram í opinni dagskrá og að bæði karla- og kvennadeildin fái þar sitt pláss.

Hefst með meistarakeppni HSÍ

Samstarfið hefst föstudaginn 28. ágúst þegar meistarakeppni HSÍ fer fram á Hlíðarenda. Valur og Haukar mætast þá í tveimur leikjum.

Klukkan 18:00 mætast liðin í meistarakeppni kvenna og klukkan 20.15 er komið að karlaliðunum.

Báðir leikirnir verða í opinni dagskrá á Handboltapassanum og Livey.

Guðjón Sveinsson, framkvæmdastjóri Livey, segir samstarfið mikla viðurkenningu fyrir streymisveituna.

„Handboltinn er ein sterkasta íþróttagrein landsins og það er heiður fyrir okkur að fá að flytja hann til áhorfenda. Við ætlum að nýta tæknina til að gera hverja útsendingu betri – endursýningar og aukin gæði og með því að bjóða Handboltapassann í Livey sport-pakkanum náum við til enn fleiri áhorfenda,“ segir Guðjón.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top