
FH-ingar hafa unnið hörðum höndum í sumar við að gera Kaplakrika kláran fyrir komandi handboltatímabil. Nú er stór áfangi í þeirri vinnu lokið eftir að nýtt parket var lagt í hinn sögufræga íþróttasal. Karlalið FH leikur í Olís-deild karla á meðan kvennaliðið leikur í Grill66-deildinni á komandi tímabili. Gamla parketið hafði þjónað sínum tilgangi í 36 ár og var orðið verulega lúið. Sigurgeir Árni Ægisson, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar FH, sagði í viðtali við Vísi í vikunni að tímabært hafa verið að skipta því út. Viðtalið tók góðvinur Handkastsins, Stefán Árni Pálsson. „Það var orðið lúið. Það var búið að pússa það og slípa alveg niður og svo var grindin á mörgum stöðum orðin léleg. Það voru alls konar viðgerðir í gegnum tíðina, þannig að þetta var orðið tímabært,“ sagði Sigurgeir Árni. Á gamla parketinu voru spilaðir fjölmargir eftirminnilegir leikir í gegnum tíðina en stærstum hluta þess var hent eftir að það var fjarlægt. Eitthvað af parketinu var þó varðveitt og útilokar Sigurgeir Árni ekki að FH-ingar nýti það á skemmtilegan hátt. „Það var nú eitthvað varðveitt svo það getur verið að það verði uppboð á einhverjum flísum og að gamlar stjörnur sjái í hillingum parketið þar sem þeir gerðu einhverja meistaratakta." Það eru þó fleiri framkvæmdir fram undan í Kaplakrika. Til stendur að skipta út stúkunum í salnum, en sú framkvæmd hefur tafist og verður ekki lokið fyrir upphaf komandi tímabils. „Það er aðeins flóknari framkvæmd. Stúkurnar eru ekki lagervara og það þarf að hanna þær út frá hverju húsi. Það er ýmislegt í þessu húsi sem þarf að sníða þetta að. Við vorum ekki nógu ánægðir með lausnina sem við fengum og það er verið að smíða ný útboðsgögn. Ef það er verið að gera þetta á annað borð þá þurfum við að vera fullkomlega sáttir með þetta,“ segir Sigurgeir Árni. Karlalið FH leikur í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í vetur ásamt Val. „Við erum að fara í Evrópudeildina sem hefst í lok næsta mánaðar. Við sáum það að nýja stúkan yrði aldrei klár fyrir það og hugsuðum því að það væri betra að bíða fram yfir Evrópudeildina,“ sagði Sigurgeir Árni. Nýtt parket verður því tilbúið þegar FH-ingar hefja nýtt tímabil, en gestir Kaplakrika þurfa að bíða aðeins lengur eftir nýjum stúkum.
Nýjar stúkur þurfa að bíða

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.