Fyrstu umferðin í dönsku úrvalsdeildinni hófst í gær þegar GOG vann Skjern í opnunarleiknum, 35-29 en í kvöld var röðin komin að Íslendingaliðunum. Skanderborg með Kristján Örn Kristjánsson, Donna innanborðs unnu góðan sigur á heimavelli gegn Ísaki Gústafssyni og félögum í Ringsted í miklum markaleik, 40-34. Donni skoraði átta mörk úr tólf skotum á meðan Ísak var ekki með að þessu sinni. Skanderborg náði sínum besta árangri í fyrra þegar liðið lenti í öðru sæti deildarinnar og það verður fróðlegt að sjá hvort þeir nái að endurtaka leikinn eða gera ennþá betur. Elvar Ásgeirsson átti frábæran leik fyrir Ribe-Esbjerg þegar liðið vann nauman heimasigur á Mors-Thy, 34-32. Elvar skoraði fimm mörk úr sjö skotum og gaf sex stoðsendingar að auki. Elvar endaði seinasta tímabil mjög vel og kemur vel stemmdur inn í nýtt tímabil. Önnur úrslit urðu þannig að meistararnir í Álaborg unnu góðan útisigur á Sønderjyske, 28-32. Kolding unnu eins marks sigur á Skive í einvígi nýliðanna, 35-34 og að lokum unnu Fredericia gríðarlega þægilegan útisigur á Nordsjælland, 24-31 Úrslit kvöldsins: Skanderborg 40-34 Ringsted Ribe-Esbjerg 34-32 Mors-Thy Sønderjyske 28-32 Aalborg Kolding 35-34 Skive Nordsjælland 24-31 Fredericia

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.