Þorgils Jón Svölu Baldursson, línumaður Íslands- og deildarmeistara Vals á síðustu leiktíð, er enn án félags fyrir komandi tímabil. Hann er fluttur til Portúgals ásamt kærustu sinni, Lovísu Thompson, sem gekk í raðir Benfica í sumar. Þorgils Jón, sem hefur verið lykilmaður í liði Vals undanfarin ár, hefur hins vegar ekki fundið sér félag í Portúgal og er því enn óljóst hvar hann leikur á næstu leiktíð. Hann lék með HF Karlskrona í Svíþjóð áður en hann sneri aftur heim í Val í janúar 2025. Lovísa gekk í sumar í raðir Benfica og flutti Þorgils Jón með henni til Portúgals. Handkastið greindi frá því í maí að líklegt væri að leið þeirra lægi saman til Portúgals. Þorgils Jón hefur síðan æft upp á eigin spýtur á meðan hann leitar að nýju félagi. „Eins og staðan er ég núna bara enn í Portúgal án félags. Ég æfi sjálfur og fæ stundum að nota aðstöðuna í Benfica. Ég er enn að leita að liði. Það eru nokkrir möguleikar í boði en ekkert komið langt,“ sagði Þorgils Jón í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.