FH spáð efsta sæti í Grill 66 deild kvenna
Brynja T.)

Á kynningarfundi Olís og Grill deildanna í hádeginu var kynnt spá leikmanna og þjálfara fyrir komandi tímabil.

Í Grill 66 deild kvenna er FH spáð afgerandi sigri í deildinni. Það urðu auðvitað vendingar í vikunni þegar Víkingur dró lið sitt úr keppni og Selfoss tók það sæti. Fyrirfram hefðu margið talið Selfoss liðið vera það sterkasta í Grill 66 deildinni en nú þegar þær hafa tekið sæti í Olís deildinni er FH spáð afgerandi sigri.

Spá liðanna og þjálfaranna lítur svona út:

  1. FH með 125 stig
  2. Afturelding með 100 stig
  3. Valur 2 með 88 stig
  4. HK 2 66 stig
  5. Fjölnir með 60 stig
  6. Fram 2 með 55 stig
  7. Grótta 2 með 35 stig

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top