Valsmenn eru meistarar meistararanna
Jens Kr Vang

Valur unnu sigur á Haukum, 31-26, í Meistarakeppni HSÍ í handbolta á Hlíðarenda í kvöld en þessum tveimur liðum er spáð efstu tveimur sætum Olís deildar karla fyrir komandi tímabil. Valsmönnum er spáð öðru sæti deildarinnar en Haukum er spáð deildarmeistaratitli.

Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var staðan 15-14 fyrir Val í hálfleik en Valsmenn stungu af í þeim síðari og landaði liðið fimm marka sigri og leikurinn endaði 31-26 fyrir Val.

Arnór Snær Óskarsson var atkvæðamestur í liði Vals með níu mörk. Gunnar Róbertsson og Allan Norðberg skoruðu báðir fimm mörk og aðrir minna.

Freyr Aronsson átti góðan leik í liði Hauka en hann skoraði átta mörk. Össur Haraldsson, Skarphéðinn Ívar Einarsson og Andri Fannar Elísson komu þar á eftir allir með fjögur mörk, aðrir skoruðu minna.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top