Akureyringurinn og Þórsarinn Arnviður Bragi Pálmason er genginn í raðir Fjölnis frá Þór Akureyri. Arnviður Bragi leikur í vinstri skyttu og er auk þess öflugur varnarmaður. "Við erum mjög ánægð með að fá Adda til liðs við okkur. Hann er öflug skytta og frábær varnarmaður sem mun styrkja hópinn okkar mikið. Við höfum mikla trú á honum og erum sannfærð um að hann eigi eftir að reynast liðinu mikilvægur á komandi árum" segir í tilkynningu frá meistaraflokksráði Fjölnis í dag. "Ég er gríðarlega ánægður og spenntur að vera partur af þessum spennandi hópi og ég trúi því að þessi hópur eigi eftir að ná langt í vetur. Ég mun leggja mig allan fram svo að þetta frábæra lið nái góðum árangri og vonandi verð ég fljótur að venjast því að klæðast gulri og blárri treyju" sagði Arnviður Bragi jafnframt í tilkynningu Fjölnis í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.