Æfingaleikur HK og FH á Hafnarfjarðarmótinu reyndist Kópavogsliðinu afar dýrkeyptur. FH hafði betur, 33-30, en það sem stóð upp úr voru alvarleg meiðsli þriggja leikmanna HK á aðeins fjögurra mínútna kafla. Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari HK, staðfesti meiðslin í samtali við Handkastið. Daninn Andrew Wisman sem gekk í raðir HK í sumar varð verst úti en hann hlaut svokallað Jones-brot, beinbrot á utanverðri rist. Hann hefur þegar gengist undir aðgerð og verður frá keppni í um 12 vikur. Styrmir Hugi Sigurðarson brotnaði einnig, en hann hlaut beinbrot í hné. Halldór gerir ráð fyrir að hann verði frá í tvo til þrjá mánuði. Þá nefbrotnaði Jóhann Birgir Ingvarsson og verður að öllum líkindum frá í að minnsta kosti sex vikur. „Þessi æfingaleikur við FH var ansi dýr og sennilega heimsmet að þrír leikmenn brotni á fjórum mínútum í sama leiknum,“ sagði Halldór Jóhann. Meiðslin eru því mikið áfall fyrir HK áður en nýtt keppnistímabil hefst. HK leikur opnunarleik Olís-deildarinnar, á fimmtudaginn í næstu viku þegar liðið fær KA í heimsókn í Kórinn. Næst fer liðið síðan norður og leikur gegn Þór í 2.umferðinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.