Georgíski landsliðsmaðurinn Giorgi Dikhaminjia, leikmaður KA í Olís-deild karla, reiknar með að verða frá keppni í um sex mánuði eftir aðgerð á hné. Dikhaminjia gekkst undir aðgerð á brjóski í hnénu á dögunum og kom þá í ljós að meiðslin voru alvarlegri en upphaflega var talið. „Ég fór í aðgerð á brjóskinu í hnénu. Því miður kom í ljós að skaðinn var alvarlegri en við höfðum áður talið. Ég er núna í Georgíu og var útskrifaður af sjúkrahúsinu fyrir nokkrum dögum, þannig að ég er nú að hefja endurhæfinguna,“ segir Giorgi í samtali við Handkastið. Hann segir bæði íslenska og georgíska lækna hafa metið stöðuna eftir aðgerðina og niðurstaðan sé sú að hann geti að óbreyttu snúið aftur á handboltavöllinn eftir um sex mánuði. „Samkvæmt mati íslensku og georgísku læknanna eftir aðgerðina er gert ráð fyrir að ég geti snúið aftur á völlinn eftir um sex mánuði.“ Þetta er mikið áfall fyrir KA, enda var Dikhaminjia einn af lykilmönnum liðsins á síðustu leiktíð. Hann skoraði 109 mörk í Olís-deildinni og var næstmarkahæsti leikmaður KA á tímabilinu áður en hann meiddist í landsleik með Georgíu. KA brást við fjarveru hans á dögunum þegar félagið fékk hægri hornamanninn Andra Frey Friðriksson á láni frá Aftureldingu. Andri Freyr, sem er 19 ára gamall, er uppalinn hjá Aftureldingu og verður hjá KA út árið. Andra Frey er ætlað að fylla skarð Dikhaminjia á meðan Georgíumaðurinn jafnar sig af meiðslunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.