27-18-1
(Kristinn Steinn Traustason)

Það er dálítið undarleg talnaruna: 27 - 18 - 1.

KR hefur orðið Íslandsmeistari karla í knattspyrnu í 27 skipti og 18 sinnum í körfuknattleik. Í handbolta er talan hins vegar aðeins 1.

KR varð Íslandsmeistari karla í handknattleik í fyrsta og eina skiptið árið 1958 og vekur það áhugaverða spurningu: Hvers vegna varð eitt mesta stórveldi landsins í íþróttum aldrei stórveldi í handbolta?

Handboltinn var til staðar

Skýringin er ekki sú að handbolti hafi aldrei náð fótfestu í KR. Félagið átti meistaraflokka karla og kvenna um áratugaskeið, lék í efstu deildum og varð Íslandsmeistari 1958. Handboltinn var því raunverulegur og áþreifanlegur hluti af starfsemi félagsins. Hann náði hins vegar aldrei sömu stöðu og knattspyrnan og síðar körfuboltinn.

Þar skiptir hefðin miklu. Árangur skapar væntingar og væntingar styrkja sjálfsmynd félags. Í KR varð snemma sjálfsagt að knattspyrnuliðið ætti að keppa um titla. Sami grunnur festi síðar rætur í körfuboltanum.

Í handboltanum varð þessi hringrás aldrei jafn sterk.

Nágranninn tók sér handboltann fastari tökum

Landafræðin skiptir einnig máli og bæjarmörkin; hverfaskiptingin. Íþróttafélagið Grótta var stofnað á Seltjarnarnesi árið 1967 og handboltinn varð síðar ein af meginstoðum félagsins. Þar með varð til öflugur handboltakjarni rétt vestan við KR-svæðið.

Það væri of einfalt að segja að Grótta hafi hrifsað handboltann frá KR. En Vesturbærinn og Seltjarnarnes mynda sterkt og samfellt samfélag og félögin þurftu óhjákvæmilega að sækja í svipaðan hóp barna, foreldra, þjálfara og sjálfboðaliða.

Á meðan knattspyrnan og körfuboltinn höfðu sterka stöðu innan KR varð handboltinn sífellt sterkari hluti af sjálfsmynd Gróttu. Það hafði áhrif.

Heimili og aðstaða íþróttagreina skiptir máli

Aðstaðan er annar þáttur. Þegar nýtt íþróttahús reis í Frostaskjóli fékk körfuboltinn skýrt og sýnilegt heimili innan KR. Slík hús eru meira en æfingasalir. Þau verða miðpunktur alls: þar leika meistaraflokkarnir, yngri iðkendur sjá hetjur sínar og fyrirmyndir og hefðin verður áþreifanleg.

Handboltinn í KR eignaðist aldrei sambærilega aðstöðu. Á sama tíma byggðu önnur Reykjavíkurfélög upp íþróttahús þar sem handboltinn varð ráðandi grein. Fram, Víkingur, Valur, ÍR og fleiri fengu þannig sterka heimavelli fyrir handknattleiksdeildir sínar.

Mannvirki vinna ekki titla ein og sér. En þau hjálpa til við að skapa umhverfið þar sem titlar verða mögulegir.

Sagan er þó ekki búin

Sögu handboltans hjá KR lauk ekki með því að félagið hvarf úr fremstu röð. Raunar hefur handboltinn í Vesturbænum aldrei alveg horfið, hann hefur aðeins tekið á sig mismunandi myndir.

KR og Grótta eigan sameiginlega sögu í þessari íþrótt og hafa spilað undir merkjum Gróttu/KR. Haustið 1997 kom fram sameiginlegt meistaraflokkslið Gróttu/KR í kvennaflokki og síðar léku félögin einnig saman undir merkjum Gróttu/KR í meistaraflokki karla. Um tíma var því sú hugmynd komin vel á leið að Seltjarnarnes og Vesturbærinn sameinuðu krafta sína í handboltanum.

Síðar skildu leiðir á ný. Grótta byggði upp eigið öflugt meistaraflokksstarf en KR hélt áfram handboltastarfi sínu í mun minna mæli.

Nú hefur sagan hins vegar tekið annan snúning. Frá haustinu 2019 hafa félögin á ný sameinað krafta sína í yngri flokkum, fyrst í 4. og 5. flokki karla, og samstarfið hefur síðan vaxið. Sameiginleg lið Gróttu/KR hafa náð góðum árangri og æfingar fara fram bæði á Seltjarnarnesi og í Vesturbænum.

Það vekur upp áhugaverða spurningu um framtíðina. Þarf KR endilega að endurreisa handknattleiksdeild sína eina og sér í þeirri mynd sem hún var áður?

Eða er eðlilegra að líta á Vesturbæinn og Seltjarnarnes sem eitt samfellt upptökusvæði fyrir handbolta?

Grótta hefur sterka handboltahefð, afreksstarf og umgjörð. KR hefur stórt bakland í einu fjölmennasta og rótgrónasta hverfi borgarinnar. Saman hafa félögin þegar sýnt, bæði fyrr og nú, að þau geta byggt upp öflug lið.

Kannski er framtíð handboltans undir merkjum KR því ekki fólgin í því að endurskapa fortíðina.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top