Öll Íslendingaliðin áfram í sænska bikarnum
Kristianstad

Fyrstu umferðinni í sænska bikarnum er lokið og eru öll Íslendingaliðin komin áfram í næstu umferð.

Kvennalið Sävehof fór nokkuð þægilega í gegnum andstæðing sinn, Stenungsunds með tveimur sigrum, 20-50 og 47-25. Elín Klara skoraði átta mörk í fyrri leiknum og var mjög líklega hvíld meirihluta seinni leiksins og lét lítið fyrir sér fara með þrjú mörk. Sävehof mætir Boden í 16 liða úrslitum en Boden eru núverandi bikarmeistarar.

Karlamegin voru það líklega sænsku meistararnir Kristianstad sem lentu í mestu erfiðleikunum en þeir unnu IFK Ystad sem spila í næstefstu deild. Landsliðsmaðurinn Jim Gottfridsson samdi við IFK Ystad í sumar og með hann innanborðs voru Ystad yfir í hálfleik í fyrri leiknum en því miður dugði það ekki til og Kristianstad hafði sigur 26-33 og kláraði síðan seinni leikinn, 35-29. Allir Íslendingarnir létu vel að sér kveða en athygli vakti að Ólafur Guðmundsson er snúinn aftur í lið Kristianstad og hann spilaði seinni leikinn, þó ekki nema rétt rúmar 10 sekúndur þegar hann fékk beint rautt spjald. Baldur Fritz Bjarnason og Andri Erlingsson spiluðu sína fyrstu keppnisleiki fyrir liðið en Baldur skoraði samtals átta mörk í leikjunum og Andri skoraði sjö á meðan Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði tólf mörk í leikjunum.

Amo fór þægilega í gegnum Linköping og unnu báða leikina með miklum mun, 26-37 og 35-24 þar sem Arnar Birkir Hálfdánsson fór lítið fyrir sér fara og skoraði tvö mörk í báðum leikjunum.

Sömu sögu má segja um Sävehof sem vann Tumba nokkuð örugglega, 26-33 og 37-28. Birgir Steinn Jónsson skoraði ekkert mark í öðrum leiknum en aðeins eitt mark í hinum.

Að lokum unnu Karlskrona báða leikina gegn Anderstorps frekar sannfærandi, 25-34 og 33-23. Arnór Viðarsson skoraði fjögur mörk í fyrri leiknum en var svo ennþá betri í seinni leiknum og skoraði sjö mörk.

Öll Íslendingaliðin sluppu við að mætast í sextán liða úrslitunum en Kristianstad mætir Lugi frá Lundi, Karlskrona mætir VästeråsIrsta, Amo mætir Skånela á meðan Sävehof mætir Skövde. Sextán liða úrslitin hefjast í vikunni og klárast síðan í næstu viku.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top