Dregið í 32-liða úrslit Powerade bikarsins í dag
Egill Bjarni Friðjónsson

Dregið verður í 32-liða úrslit Powerade bikars karla í dag, miðvikudaginn 2. september, klukkan 12:15.

Drátturinn verður í beinu streymi á nýrri Instagram-síðu Powerade bikarsins, @powerade_bikarinn.

Sjö lið eru í pottinum að þessu sinni: Fjölnir, Grótta, ÍBV B, ÍR, Víðir, Hvíti Riddarinn og Hörður.

Dregið verður í þrjár viðureignir og því liggur fyrir að eitt lið sleppur við að spila í þessari umferð. Liðið sem kemur síðast upp úr pottinum situr hjá og fer beint áfram í næstu umferð.

Þar bætast síðan öll lið Olís-deildar karla inn í keppnina og því bíður þeirra liða sem eru í pottinum möguleiki á að fá alvöru stórleik í næstu umferð.

Bikarkeppnin er jafnan ein skemmtilegasta keppni tímabilsins þar sem lið úr öllum deildum geta mæst og óvænt úrslit geta alltaf litið dagsins ljós.

Fylgst verður með drættinum í beinu streymi á Instagram-síðu Powerade bikarsins klukkan 12:15 í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top