Sá lang markahæsti missir af upphafi tímabilsins
Kristinn Steinn Traustason

Hannes Höskuldsson, vinstri hornamaður Selfoss vonast til að geta snúið aftur á handboltavöllinn í október eftir aðgerð sem hann gekkst undir um miðjan júní.

„Staðan er nokkuð góð bara. Ég er á flottum stað í endurhæfingunni og bara gengið vel hingað til. Ég er í góðum höndum hjá Jónda og Katli,“ sagði Hannes.

„Ég vonast til þess að geta mætt á völlinn einhvern tímann í október, en það verður bara að koma í ljós hvort það náist.“

Hannes er einn af öflugustu vinstri hornamönnum Olís-deildarinnar og var langmarkahæsti leikmaður Selfoss á síðustu leiktíð er liðið endaði í 10.sæti deildarinnar sem nýliði. Hann skoraði 154 mörk, en næstur í markaskorun liðsins kom Tryggvi Sigurberg Traustason með 83 mörk. Endurkoma Hannesar yrði því mikilvæg fyrir Selfoss liðið.

Selfoss fær Íslandsmeistara Vals í heimsókn í 1.umferð Olís-deildarinnar á fimmtudaginn. Liðið fer svo til Eyja og mætir ÍBV í 2.umferðinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top