Fyrrum markvörður FH gengur í raðir Harðar
Arkiv/Thomas Sundström

Grill66-deildarlið Harðar á Ísafirði heldur áfram að styrkja leikmannahóp sinn fyrir komandi tímabil en serbneski markvörðurinn Lazar Minić hefur samið við félagið.

Minić er þar með þriðji erlendi leikmaðurinn sem gengur í raðir Harðar fyrir komandi tímabil en Handkastið greindi frá því í vikunni að Igor Chesiliov væri á leið til Ísafjarðar frá Þór. Þá hefur króatíski leikstjórnandinn Lovro Kresic einnig samið við Hörð.

Minić er 31 árs og þekkir íslenskan handbolta vel en hann lék með FH tímabilið 2018–19. Hann kom þá til Hafnarfjarðar frá Serbíu og var fenginn til að fylla skarð Ágústs Elí Björgvinssonar sem hélt til sænska stórliðsins Sävehof.

Markvörðurinn er 193 sentímetrar á hæð og hefur á ferlinum leikið með fjölda félaga. Hann á að baki reynslu úr serbneska handboltanum auk þess að hafa leikið utan heimalandsins. Minic kemur til ísafjarðar frá Finnlandi þar sem hann hefur leikið.

Hörður mætir ÍR í 1.umferð Grill66-deildarinnar á morgun á heimavelli klukkan 17:00.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top