Kári Tómas snýr aftur í Kórinn
HK

Kári Tómas Hauksson er kominn aftur heim í Kórinn og hefur samið við HK út tímabilið.

Kári Tómas er uppalinn hjá HK og snýr nú aftur í herbúðir félagsins eftir að hafa leitað á önnur mið en hann lék í neðri deild í Þýskalandi á síðustu leiktíð. Hann þekkir því vel til í Kórnum og veit hvað felst í því að klæðast græna HK-búningnum.

„Það er alltaf mikið gleðiefni þegar einn af okkar eigin snýr aftur heim og því ríkir mikil ánægja með að fá Kára aftur í HK búninginn,“ segir í tilkynningu frá HK en Kári Tómas lék með Hameln í Regionalliga deildinni.

„Kári þekkir félagið, umhverfið og hvað það þýðir að klæðast HK treyjunni. Við hlökkum mikið til að fá hann aftur inn í hópinn og sjá hann leggja sitt af mörkum í þeirri vegferð sem fram undan er.“

Kári Tómas var ekki í leikmannahópi HK í 1.umferð Olís-deildarinnar þegar liðið fékk KA í heimsókn og þurfti að sætta sig við tap í þeim leik.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top