Stelpurnar eru að koma vel undan styrktaræfingum hjá Ragga
Víkingur

Vestmannaeyingurinn Gísli Steinar Jónsson var á dögunum ráðinn nýr þjálfari mfl kvenna hjá Víking eftir að Eva Hrund Harðardóttir hætti óvænt 9 dögum fyrir mót og liðið ákvað að draga sæti sitt í Olís deildinni tilbaka og fara niður í Grill 66 deild karla eins og alþjóð veit væntanlega. Gísli var í sumar ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins auk þess að vera ráðinn þjálfari hjá 3. flokk kvenna og 4. flokk kvenna hjá félaginu. Það er því óhætt að segja að hann sé í aðalhlutverki í kvennastarfi Víkings.

Við heyrðum aðeins í Gísla Steinari og fengum hann til að senda okkur nokkrar línur um nýja starfið, það sem framundan er, um hópinn osfrv.

"Veturinn leggst bara vel í mig. Þetta verður krefjandi en markmiðið er að gera þetta skemmtilegt og gera þetta vel. Það er mikil endurnýjun sem hefur átt sér stað í kringum liðið og hlakka ég bara mikið til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem liðið er að fara af stað í. Staðan á liðinu er ágæt. Stelpurnar eru búnar að vera á styrktaræfingum hjá Ragga í allt sumar og eru að koma vel undan því"

"Ég þurfti satt best að segja ekkert að hugsa mig lengi um hvort ég ætti að taka þetta starf eftir samtal við fjölskylduna. Ég þekkti hópinn nokkuð vel eftir þennan stutta tíma sem aðstoðarþjálfari og vissi í raun hvað ég var með í höndunum"

"Hópurinn er í raun endanlegur eins og staðan er núna. Við erum þó alveg opin fyrir því að fá inn leikmenn í vissar stöður án þess þó að vera að eyða miklu púðri í að leita að styrkingum. Ég er alveg sáttur við þann hóp sem ég er með í höndunum. Við erum búin að fá inn flottar styrkingar í útilínuna og erum bara með fína breidd þar. Anita Muratovic sem kom til okkar í sumar frá Svartfjallalandi verður með okkur í vetur og hefur engin farið frá borði frá okkur eftir þá ákvörðun að færa liðið niður í grillið, sem er hrikalega jákvætt"

"Við höfum í raun ekkert sett okkur markmið fyrir þetta tímabil. Þetta er ákveðin núllstilling sem á sér stað við það að taka sæti í deild neðar en áætlunin var. Undirbúningstímabilið hefur ekki verið nægilega markvisst, en stelpurnar eru búnar að lyfta vel og eru á fínum stað hvað það varðar"

"Handboltalega erum við komnar styttra en nú hefst vinnan við það að slípa þetta saman og finna út hvernig handbolta er best fyrir okkur að spila. Ég hef tröllatrú á því að við náum að gera það gott á þessu tímabili, það er flottur mórall í hópnum og stelpurnar eru klárar.
Svo er komið ákveðið "know-how" innan félagsins í að byggja upp lið. Strákamegin tók þetta 2 ár og markmiðið er svipað kvennamegin, þó er enginn að flýta sér og á að gera hlutina eins vel og hægt er. Það eru að koma upp frábærir árgangar með marga iðkendur sem þarf að halda vel utanum og taka allir þátt í því innan félagsins"

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top