Gabríel Ari semur við ÍBV
ÍBV

Gabríel Ari Davíðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild ÍBV og er samningsbundinn félaginu út tímabilið 2027/28.

Gabríel Ari er fæddur árið 2006 og er uppalinn hjá ÍBV þar sem hann hefur leikið upp alla yngri flokka félagsins. Hann hefur einnig leikið með HBH í Grill66-deildinni en liðið leikur í 2.deildinni á komandi tímabili.

Hinn tvítugi Gabríel Ari er markvörður og hefur fengið tækifæri með ÍBV undanfarin ár.

„Við hlökkum til að starfa með Gabríel áfram og fylgjast með honum taka næsta skref á sínum ferli,“ segir í tilkynningu ÍBV.

ÍBV hefur leik í Olís-deild karla á sunnudaginn þegar liðið heimsækir Hauka á Ásvelli í lokaleik 1.umferðarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top