
Grill 66 deild karla er að fara af stað og hefst hún í kvöld. Fyrsti leikurinn í deildinni þetta árið er leikur Gróttu og Víðis og verður flautað til leiks á Seltjarnarnesi í kvöld kl. 19:30. Bæði lið hafa fengið mikið af nýjum leikmönnum í sín lið í sumar en þeim er hinsvegar spáð misjöfnu gengi. Gróttu mönnum er spáð 2. sæti en nýliðum Víðis er spáð 12. sæti sem er jafnframt botnsætið í deildinni. Það verður gaman að sjá hvort að lærisveinar Elzbieta Kowal í Víði Garði nái að velgja Gróttu liðinu undir uggum í opnunarleik Grill 66 deildarinnar þetta árið. Aðrir leikir í 1. umferðinni eru eftirfarandi: Fjölnir - Hvíti Riddarinn í Fjölnishöll á laugardaginn 5. sept kl. 15:30
HK 2 - Selfoss 2 í Kórnum á laugardaginn 5. sept kl. 16:00
Hörður - ÍR á Ísafirði á laugardaginn 5. sept kl. 17:00
Haukar 2 - Valur 2 á sunnudaginn 6. sept kl. 13:00 á Ásvöllum
Fram 2 - Víkingur 2 á sunnudaginn 6. sept kl. 15:45 í Lambhagahöllinni

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.