Við erum ungir og graðir
Emma Elísa Jónsdóttir

1.umferðin í Olís-deild karla heldur áfram í kvöld með tveimur leikjum en nýliðar Víkings fara í Mosfellsbæinn og mæta Aftureldingu klukkan 19:30 í kvöld. Klukkan 20:15 mætast síðan FH og Stjarnan.

Ásgeir Snær Vignisson er á leið inn í sitt þriðja tímabil með Víking og var í viðtali á samfélagsmiðlum Víkings fyrir leikinn í kvöld. Þar var hann spurður út í stöðuna á hópnum og hvernig undirbúningstímabilið hafi gengið.

,,Undirbúningstímabilið hefur gengið þokkalega vel. Ég held að flestir séu í toppstandi og allir heilir og flottir. Við erum spenntir að byrja," sagði Ásgeir Snær.

,,Við erum ungir og graðir og spenntir og vel drillaðir til að koma fólki á óvart."

Hann hvetur Víkinga til að fjölmenna í Mosfellsbæinn í kvöld.

,,Ef þið viljið sjá skemmtilegan handbolta þá hvet ég ykkur til að mæta. Við ætlum að reyna skapa góða stemningu í kringum liðið þannig endilega, kíkið á leikinn.”

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top