Benóný Þór Benonýsson, oftast kallaður Binni Þór, hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við handknattleiksdeild ÍBV en samningurinn gildir til tveggja ára. Binni Þór er ungur og efnilegur hornamaður sem hefur tekið miklum framförum undanfarin ár. Hann byrjaði ekki að æfa handbolta fyrr en 15 ára gamall en hefur síðan þá unnið sér inn sæti í yngri flokkum félagsins. Binni Þór var hluti af bikarmeistaraliði 3. flokks ÍBV á síðasta tímabili. „Við hlökkum til að starfa með Binna Þór áfram og fylgjast með honum taka næsta skref á sínum ferli,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar ÍBV. ÍBV heimsækir Hauka á Ásvelli á morgun í lokaleik 1.umferðar Olís-deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.