Það var nóg af leikjum á Norðurlöndunum í dag en Ribe-Esbjerg freistaði þess að halda áfram góðri byrjun sinni í dönsku úrvalsdeildinni á meðan fyrri leikirnir í sænska bikarnum fóru fram. Ribe-Esbjerg mætti í heimsókn til Ringsted sem voru neðstir án stiga fyrir leikinn í dag en það var ekki að sjá á leik liðsins. Heimamenn bitu frá sér þrátt fyrir að sakna enn Ísaks Gústafssonar sem var ennþá frá vegna meiðsla. Leiknum lauk með jafntefli í hörkuleik, 30-30 og fyrsta stig Ringsted komið í hús. Gestirnir eru áfram á toppi deildarinnar en eru nú með sjö stig af átta mögulegum. Elvar Ásgeirsson skoraði fjögur mörk úr sjö skotum og gaf fjórar stoðsendingar fyrir Ribe-Esbjerg. Skanderborg unnu góðan heimasigur á nýliðum Skive í miklum markaleik, 42-38. Kristján Örn Kristjánsson, Donni skoraði fimm mörk úr tíu skotum fyrir heimamenn og gaf eina stoðsendingu að auki. Skanderborg eru í öðru sæti deildarinnar með þrjá sigra úr fyrstu fjórum leikjum sínum. Í næstefstu deild kvenna í Danmörku tóku Rødovre á móti Roskilde og reyndust gestirnir sterkari í dag og unnu góðan sigur, 24-29. Inga Dís Jóhannsdóttir átti fínan leik og skoraði fimm mörk fyrir heimakonur á meðan Thelma Melsteð skoraði tvö mörk og fékk eina brottvísun að auki. Í norsku úrvalsdeildinni unnu Elverum sterkan útisigur gegn Bergen með tveimur mörkum, 29-31. Tryggvi Þórisson var ekki með Elverum að þessu sinni. Fastlega er búist við því að Elverum verði Noregsmeistari í ár en þeir byrja deildina á tveimur sigrum. Fyrri leikirnir í 16 liða úrslitum sænska bikarsins fóru fram í dag en öll Íslendingaliðin unnu góða sigra. Sävehof fór í heimsókn til Skövde og vann gríðarlega öruggan sigur, 25-34 en Birgir Steinn Jónsson skoraði ekki að þessu sinni fyrir gestina. Amo vann einnig mjög þægilegan sigur á Skånela, 25-35 þar sem Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði þrjú mörk fyrir gestina. Karlskrona vann síðan nauman heimasigur á VästeråsIrsta, 33-32 en Arnór Viðarsson átti flottan leik fyrir heimamenn og skoraði sjö mörk. Að lokum eru Kristianstad komnir áfram í átta liða úrslitin en þeirra einvígi spilaðist fyrr vegna þátttöku þeirra í meistaradeildinni sem hefst í vikunni. Þeir unnu seinni leikinn gegn Lugi í gærkvöldi í öðrum markaleik, 40-42. Einar Bragi Aðalsteinsson fór á kostum hjá gestunum og skoraði tólf mörk, Baldur Fritz Bjarnason skoraði fimm mörk og Andri Erlingsson skoraði þrjú. Ólafur Guðmundsson var í leikmannahópi liðsins en komst ekki á blað. Úrslit dagsins: Ringsted 30-30 Ribe-Esbjerg Skanderborg 42-38 Skive Rødovre 24-29 Roskilde Bergen 29-31 Elverum Lugi 40-42 Kristianstad Skövde 25-34 Sävehof Skånela 25-35 Amo Karlskrona 33-32 VästeråsIrsta

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.