Kristrún Ósk Hlynsdóttir hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við handknattleiksdeild ÍBV og verður því áfram í leikmannahópi Eyjakvenna á yfirstandandi tímabili. Kristrún sneri aftur á handboltavöllinn á síðasta tímabili eftir langt hlé frá íþróttinni. Upphaflega stóð aðeins til að hún myndi æfa með liðinu tvisvar í viku en vegna meiðsla í leikmannahópnum fór hún að fylla í skörðin og varð á endanum hluti af liðinu út tímabilið. Kristrún reyndist ÍBV mikilvæg þegar leið á tímabilið og lét sérstaklega að sér kveða í undanúrslitaeinvíginu gegn Haukum, þar sem hún skoraði mikilvæg mörk fyrir Eyjakonur. Nú er ljóst að endurkoman verður ekki aðeins eins tímabils ævintýri því Kristrún hefur framlengt dvöl sína hjá ÍBV um eitt ár. ÍBV hóf tímabilið í Olís-deildinni í gær með 32-28 sigri á KA/Þór í Vestmannaeyjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.