Ásgeir Snær missir af næsta leik Víkings
Emma Elísa Jónsdóttir

Ásgeir Snær Vignisson, leikmaður nýliða Víkings í Olís-deild karla, er viðbeinsbrotinn og verður frá keppni næstu daga. Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Víkings, staðfesti meiðslin í samtali við Handkastið.

Ásgeir Snær var ekki með Víkingum þegar liðið hóf leik í Olís-deildinni gegn Aftureldingu um helgina. Ástæðan er viðbeinsbrot.

„Ásgeir verður frá næstu 7-14 daga og verður vonandi klár eftir það, ef allt gengur eftir,“ sagði Aðalsteinn í samtali við Handkastið.

Fjarvera Ásgeirs Snæs er skarð fyrir nýliðana en hann hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Víkings undanfarin tvö tímabil. Víkingar hófu tímabilið með 35-29 tapi gegn Aftureldingu í heldur óvenjulegum leik. Fyrri hálfleikurinn fór fram á föstudagskvöld en rafmagnsleysi í Mosfellsbæ varð til þess að fresta þurfti síðari hálfleiknum fram á sunnudag.

Víkingur fær KA í heimsókn í Virkið á föstudaginn í 2.umferð Olís-deildarinnar. Liðið fer síðan í Kaplakrika í 3.umferðinni og mætir þar FH.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top