Knorr skoraði sjö gegn liðinu sem hann er orðaður við
Ronny HARTMANN / AFP

Juri Knorr, leikstjórnandi danska stórliðsins Aalborg, er orðaður við Paris Saint-Germain samkvæmt þýska miðlinum RTHandballGermany.

Orðrómurinn komst á kreik í kringum leik Álaborgar og PSG í Meistaradeild Evrópu sem fram fór í gær. Knorr lét umræðuna ekki trufla sig og fór á kostum gegn félaginu sem sagt er hafa áhuga á að fá hann til liðs við sig.

Þýski landsliðsmaðurinn skoraði sjö mörk úr ellefu skotum og gaf þrjár stoðsendingar þegar liðin skildu jöfn, 33-33, eftir æsispennandi lokamínútur. Knorr skoraði síðasta mark Aalborg og kom liðinu í 33-31 þegar rúmar tvær mínútur voru eftir, en PSG tókst að jafna fyrir leikslok.

Knorr gekk til liðs við Álaborg fyrir síðasta tímabil en liðið fór alla leið í Final4 helgina í Meistaradeildinni á síðasta tímabili. Í gær voru Felix Claar og Elias á Skipagötu orðaðir við Álaborg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top