Markahæstu leikmenn Olís karla eftir 1.umferð
KA

2.umferðin í Olís-deild karla hefst í kvöld með þremur leikjum. Sannkallaður suðurlandsslagur mun eiga sér stað í Vestmannaeyjum er ÍBV og Selfoss mætast klukkan 18:00, Þór og HK mætast fyrir Norðan klukkan 19:00 og í Myntkaup höllinni tekur Afturelding á móti FH klukkan 20:15. Þrír leikir fara síðan fram annað kvöld.

Athyglisverðasti leikur umferðarinnar er sennilega leikur ÍBV og Selfoss í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum sem fer fram í kvöld klukkan 18:00. Þar vilja Eyjamenn eflaust svara fyrir sig eftir tap fyrir Haukum og Selfyssingar koma í góðum gír eftir flotta frammistöðu gegn Val.

2.umferðin:
Fimmtudagur:
18:00 ÍBV - Selfoss
19:00 Þór - HK
20:15 Afturelding - FH

Föstudagur:
19:00 Víkingur - KA
19:30 Valur - Fram
20:15 Stjarnan - Haukar

Hér má sjá markahæstu leikmenn Olís-deildar karla eftir 1.umferðina:

  1. Dagur Árni Heimisson (KA) - 12 mörk
  2. Freyr Aronsson (Haukar) - 11 mörk
  3. Arnór Snær Óskarsson (Valur) - 10 mörk
  4. Gunnar Róbertsson (Valur) - 9 mörk
  5. Sigurður Páll Matthíasson (Víkingur) - 8 mörk
  6. Þórður Tandri Ágústsson (Þór) - 8 mörk
  7. Árni Bragi Eyjólfsson - (Afturelding) - 8 mörk
  8. Ísak Logi Einarsson (Stjarnan) - 8 mörk
  9. Símon Michael Guðjónsson (FH) - 8 mörk
  10. Oscar Lykke (Afturelding) - 7 mörk

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top