Amo fer vel af stað og Skanderborg í fjórða sætið
Eyjólfur Garðarsson)

Fjögur Íslendingalið áttu leik í dag í Svíþjóð og Danmörku en deildin í Svíþjóð er farin á fullt og sjöunda umferðin hélt áfram í Danmörku.

Amo hafa farið vel af stað í Svíþjóð en eftir jafntefli á útivelli í fyrsta leik unnu þeir góðan heimasigur á Alingsås í dag, 30-28. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði ekki fyrir Amo að þessu sinni en liðið er efst eins og sakir standa en nokkur lið eiga eftir að spila í annarri umferðinni.

Karlskrona hafa hinsvegar ekki farið vel af stað í deildinni en þeir töpuðu öðrum leik sínum þegar þeir mættu Skövde á útivelli. Lokatölur urðu 36-35 fyrir heimamenn og sárt tap fyrir gestina. Arnór Viðarsson átti fínan leik fyrir gestina og skoraði fimm mörk úr sjö skotum og gaf þrjár stoðsendingar að auki.

Í Danmörku snéri Ísak Gústafsson aftur í leikmannahóp Ringsted í deildinni en hans menn tóku á móti stórliði Álaborg og því miður reyndist það of erfitt verkefni, lokatölur urðu 30-36 fyrir gestina en Ísak skoraði eitt mark úr einu skoti fyrir heimamenn.

Að lokum unnu Skanderborg þægilegan sigur á Mors-Thy, 38-29 en Kristján Örn Kristjánsson, Donni skoraði ekki að þessu sinni fyrir liðið. Skanderborg eru í fjórða sæti deildarinnar, stigi á eftir toppliðunum þremur, GOG, Ribe-Esbjerg og Álaborg en stórleikur umferðarinnar er á mánudagskvöldið þegar Ribe-Esbjerg og GOG mætast.

Úrslit dagsins:

Amo 30-28 Alingsås

Skövde 36-35 Karlskrona

Ringsted 30-36 Aalborg

Skanderborg 38-29 Mors-Thy

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top