Fyrsti sigur Stjörnunnar í Olís-deildinni í 307 daga
Sævar Jónasson

Stjarnan tók á móti Fram í 4. umferð Olís-deildar karla á fimmtudagskvöldið og fór með sigur af hólmi 37-29 eftir að hafa verið 17-15 yfir í hálfleik. Um var að ræða fyrsta sigur Stjörnunnar á tímabilinu en liðið var með eitt stig að loknum fyrstu þremur umferðunum.

Liðið gerði jafntefli við Selfoss í síðustu umferð en Fram er með fjögur stig eftir þrjá leiki en liðið tapaði fyrir ÍBV í umferðinni á undan.

Það sem gerir sigur Stjörnunnar sérstaklega áhugaverða er að síðasti sigur Stjörnunnar í Olís-deildinni kom einmitt gegn Fram.

Stjarnan vann Fram 33–24 þann 21. nóvember í fyrra eftir að hafa náð mest 14 marka forskoti í síðari hálfleik. Í kjölfarið tapaði Stjarnan ellefu deildarleikjum í röð eða öllum leikjum sínum í síðari umferðinni á síðustu leiktíð.

Þegar liðin mættust á fimmtudagskvöldið voru því liðnir 307 dagar frá síðasta sigri Stjörnunnar í Olís-deildinni. Garðbæingar höfðu leikið 14 deildarleiki án sigurs frá leiknum gegn Fram, tapað 13 þeirra og gert eitt jafntefli.

Rætt var um sigur Stjörnunnar í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top