Marka- og stoðsendingahæstur og með 10,3 mörk að meðaltali í síðari hálfleikjum síðustu 3ja leikja
Jón Gautur Fótó

Valsarinn Gunnar Róbertsson hefur farið af stað með slíkum látum í upphafi Olísdeildarinnar að tölfræðin eftir fyrstu fjóra leikina vekur nánast meiri furðu en aðdáun.

Þessi 18 ára gamli leikmaður hefur skorað 55 mörk, eða 13,8 að meðaltali í leik, og leiðir markaskorun deildarinnar með nokkrum mun. Um er að ræða bestu byrjun leikmanns í markaskorun efstu deildar frá upphafi. En markaskorið er ekki allt.

Gunnar er einnig stoðsendingahæstur í deildinni með 33 stoðsendingar, eða 8,25 að meðaltali í leik samkvæmt HBStatz. Hann hefur því annaðhvort skorað eða lagt upp 88 mörk í fyrstu fjórum leikjunum, sem jafngildir 22 mörkum að meðaltali í leik. Þá hefur hann verið óskeikull af vítalínunni. Gunnar hefur tekið 17 vítaköst og skorað úr þeim öllum.

Frammistaðan í síðustu þremur leikjum er síðan kapítuli út af fyrir sig. Gunnar skoraði 17 mörk gegn Fram í tapleik á heimavelli, 16 mörk í útisigri gegn HK og 13 mörk þegar KA vann Val á Hlíðarenda. Af þessum 46 mörkum komu 31 í síðari hálfleik: tíu gegn Fram, ellefu gegn HK og tíu gegn KA. Það gerir 10,3 mörk að meðaltali í síðari hálfleik einum saman í síðustu þremur leikjum.

Sú tala segir meira en margt annað um frábæra byrjun leikmannsins á tímabilinu. Þegar álagið eykst og fæturnir þyngjast virðist hann halda dampi betur en flestir. Fremur en að dala hefur hann ítrekað færst í aukana eftir því sem liðið hefur á leikina.

Það hefur skipt Val miklu máli á meðan meiðsli hafa höggvið skörð í leikmannahópinn. Ábyrgðin í sóknarleiknum hefur því lent í ríkari mæli á þeim sem tiltækir eru og þar hefur Gunnar, þrátt fyrir ungan aldur, tekið að sér hlutverk sem almennt myndi falla í skaut mun reyndari leikmanna.

Samanburður við fyrri kynslóðir undirstrikar þessa mögnuðu tölfræði. Þegar Aron Pálmarsson var 18 ára með FH tímabilið 2008-09 þótti frammistaða hans einstök. Eftir fyrstu sjö leikina hafði Aron skorað 59 mörk, eða um 8,4 að meðaltali í leik, og var þá sérstaklega borinn saman við fremstu íslensku leikmennina sem höfðu brotist fram á svipuðum aldri. Gunnar er nú aðeins fjórum mörkum frá þeirri tölu eftir fjóra leiki. Það setur hlutina í ákveðið samhengi.

55 mörk. 33 stoðsendingar. 17 mörk úr 17 vítaköstum. 10,3 mörk að meðaltali í síðari hálfleikjum síðustu þriggja leikja. Þessar tölur eru fáheyrðar í íslenskum handbolta.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top