Sandefjord áfram ósigraðir og Kristianstad á kunnuglegum slóðum
Eyjólfur Garðarsson

Þrjú Íslendingalið áttu leik í Noregi í dag og Kristianstad eru komnir á toppinn í Svíþjóð eftir sinn annan sigur í fyrstu tveimur leikjunum.

Íslendingarnir í Kristianstad voru sem fyrr í stóru hlutverki þegar liðið sigraði Önnereds á heimavelli í dag, 33-28. Baldur Fritz Bjarnason var markahæstur með fimm mörk úr níu skotum ásamt einni stoðsendingu. Andri Erlingsson og Einar Bragi Aðalsteinsson skoruðu báðir tvö mörk, Andri úr sex skotum ásamt einni stoðsendingu en Einar Bragi úr fjórum skotum og bætti við tveimur stoðsendingum. Ólafur Guðmundsson var einnig í leikmannahópi liðsins.

Í Noregi eru Sandefjord áfram ósigraðir eftir fjóra leiki en þeir sigruðu Bergen á útivelli, 29-34. Sigurjón Guðmundsson átti flottan leik í markinu en hann varði fimmtán af þeim fjörtíu sem hann fékk á sig eða 38% markvarsla.

Tryggvi Garðar Jónsson og félagar í Viking fengu skell á útivelli gegn Runar, 45-26. Tryggvi skoraði eitt mark úr þremur skotum í leiknum í dag en gestirnir áttu aldrei séns gegn sterku liði Runar.

Að lokum töpuðu Drammen á heimavelli gegn Arendal, 26-34. Ísak Steinsson átti ágætan leik í marki heimamanna en hann varði fimm skot af þeim nítján sem hann fékk á sig eða 26% markvarsla.

Úrslit dagsins:

Kristianstad 33-28 Önnereds

Bergen 29-34 Sandefjord

Runar 45-26 Viking

Drammen 26-34 Arendal

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top