EHF kynnir nýtt stórmót – Fer fyrst fram árið 2030
Anne-Christine POUJOULAT / AFP

Evrópska handknattleikssambandið, EHF, hefur kynnt áform um nýtt stórmót í evrópskum handbolta sem ber heitið European Handball Games. Fyrsta mótið á að fara fram í september árið 2030.

Áformin voru kynnt á fundi framkvæmdastjórnar EHF í Búkarest en hugmyndin er að safna saman bestu landsliðum úr evrópskum karla- og kvennahandbolta á einn stað í heila viku.

Um verður að ræða eins konar handboltahátíð þar sem keppni karla og kvenna fer fram samhliða ásamt fleiri handboltatengdum viðburðum.

Samkvæmt EHF hefur hugmyndinni verið vel tekið, meðal annars af evrópsku ólympíunefndinni og íþróttafulltrúa Evrópusambandsins. Þá segir sambandið einnig áhuga vera til staðar á alþjóðlegum fjölmiðlamarkaði.

EHF vinnur nú að viðræðum um hvar fyrsta mótið verður haldið en ekki kemur fram hvaða lönd eða borgir koma til greina sem gestgjafar.

Á sama tíma greindi EHF frá miklum áhuga þjóða á að halda Evrópumót karla og kvenna árið 2034. Alls hafa ellefu handknattleikssambönd lýst yfir áhuga á að koma að mótshaldi. EM karla fer fram í janúar 2034 en EM kvenna í desember sama ár.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top