Tveir leikir áttu sér stað í dag í 6.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar. Fyrsti leikur dagsins fór fram þegar Magdeburg tók á móti Erlangan. Leikurinn byrjaði nokkuð jafnt og eftir tæpar fimm mínútur var staðan 3–3. Magdeburg fór síðan að ná yfirhöndinni og komst í 9–6 og síðar 15–8. Heimamenn héldu áfram að auka forskotið undir lok fyrri hálfleiks og fóru inn í hálfleikinn með átta marka forystu, 19–11. Í seinni hálfleik hélt Magdeburg áfram að stjórna leiknum. Þeir byrjuðu vel og komust fljótlega í 23–13 og voru því komnir með tíu marka forskot. Erlangen reyndi að minnka muninn en Magdeburg svaraði yfirleitt strax. Um miðjan seinni hálfleik var staðan 28–18, þannig að heimamenn höfðu enn mjög örugga forystu. Á lokakaflanum náði Erlangen aðeins að laga stöðuna og minnka muninn. Þegar rúmar fimm mínútur voru eftir var staðan 32–23. Erlangen skoraði nokkur mörk undir lokin en það var of seint til að ógna sigri Magdeburg. Lokastaðan varð 35–28 fyrir Magdeburg. Ómar Ingi skoraði 9 mörk í leiknum, Gísli Þorgeir 3 mörk. Í liði Erlangan skoraði Viggó Kristjánsson 1 mark. Seinni leikur dagsins fór fram í Porsche Arena þegar Stuttgart tók á móti Lemgo. Leikurinn byrjaði mjög jafn og liðin skiptust á að hafa forystuna. Eftir rúmar tíu mínútur var staðan 6–6 og áfram var lítið sem skildi liðin að. Stuttgart komst í 11–10, en Lemgo svaraði með góðum kafla og náði að snúa leiknum sér í hag. Í hálfleik var Lemgo með nauma forystu, 16–15. Lemgo byrjaði seinni hálfleikinn betur og jók forskotið fljótt. Eftir rúmar 38 mínútur var staðan 21–18 og um miðjan hálfleik var Lemgo komið í 24–20. Stuttgart gafst þó ekki upp og náði smám saman að vinna niður forskotið. Lokakaflinn varð mjög spennandi. Stuttgart jafnaði leikinn í 26–26 þegar rúmar sjö mínútur voru eftir. Lemgo svaraði hins vegar frábærlega og skoraði þrjú mörk í röð, þannig að staðan varð 26–29. Stuttgart náði aðeins einu marki til viðbótar á meðan Lemgo hélt út og tryggði sér sigurinn. Lokastaðan varð 27–30 fyrir Lemgo. Leikurinn var jafn lengst af, en Lemgo var sterkara liðið á mikilvægustu augnablikunum og sérstaklega á síðustu mínútunum þegar liðið náði aftur forskotinu eftir að Stuttgart hafði jafnað. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Niels Versteijnen með 8 mörk og 7 stoðsendingar. Úrslit dagsins: Magdeburg Erlangan 35-28 Stuttgart Lemgo 27-30

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.