Dagar 7 á 6 gætu verið taldir
Eyjólfur Garðarsson

Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, skoðar mögulegar breytingar á reglunum sem heimila liðum að leika með sjö útileikmenn gegn sex. Til umræðu hefur meðal annars komið að banna fyrirkomulagið eða setja á það frekari hömlur og gætu breytingar verið prófaðar á heimsmeistaramótum yngri landsliða árið 2027.

Philippe Bana, forseti franska handknattleikssambandsins og fyrsti varaforseti IHF, staðfestir í samtali við franska handboltamiðilinn HandNews að umræður séu í gangi innan IHF um framtíð sjö á móti sex.

Fjöldi þjálfara og sérfræðinga kom saman í Kaíró á dögunum samhliða heimsmeistaramóti félagsliða þar sem þróun handboltans og mögulegar reglubreytingar voru ræddar.

Sjö á móti sex var þar meðal þess sem fór undir smásjána.

Ein helsta gagnrýnin snýr að því að núverandi reglur dragi úr áhrifum tveggja mínútna brottvísana. Lið sem missir leikmann af velli getur tekið markvörðinn út og sent aukamann inn í sóknina og þannig áfram sótt sex gegn sex.

Þá hefur fyrirkomulagið einnig leitt til mun fleiri skota og marka í autt mark. Engin ákvörðun hefur verið tekin og enn er um hugmyndir að ræða.

Einn möguleikinn er að banna sjö á móti sex eins og það þekkist í dag en einnig kemur til greina að setja frekari takmarkanir á hvernig og hvenær lið mega nýta sér aukamann í sókn.

Stjórn IHF mun taka málið til umræðu í janúar og þar verður meðal annars tekin afstaða til þess hvort prófa eigi breytingar á heimsmeistaramótum yngri landsliða árið 2027.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top