Zorman: „Þú getur unnið hvern sem er – en líka tapað fyrir hverjum sem er“
Anne-Christine POUJOULAT / AFP)

Goðsögnin Uros Zorman, þjálfari Slovan og slóvenska landsliðsins, segir riðil liðsins í Evrópudeildinni í handbolta afar sterkan og telur að minni munur sé á gæðum liðanna í keppninni og Meistaradeildinni en nöfn liðanna gefi til kynna.

Slovan tekur á móti Val í Ljubljana í kvöld í annarri umferð riðlakeppninnar. Bæði lið hófu keppnina með sigri, Slovan vann Tatabánya 36–31 á útivelli á meðan Valur fór illa með danska liðið Mors-Thy, 39–28.

„Þetta er mjög erfið keppni. Í samanburði við Meistaradeildina er munurinn helst sá að liðin eru ekki jafn þekkt, en þau eru engu að síður mjög sterk,“ sagði Zorman í aðdraganda riðlakeppninnar.

„Í Evrópudeildinni geturðu unnið hvern sem er en á sama tíma geturðu líka tapað fyrir hverjum sem er.“

Zorman sagði Slovan hafa fengið afar áhugaverðan riðil þar sem ólíkir handboltaskólar mætast.

„Í okkar riðli erum við með ungverskan, íslenskan og danskan handbolta - sterkan handbolta.“

Þegar Zorman ræddi riðilinn fyrir fyrsta leik hafði hann ekki enn farið sérstaklega yfir Val eða Mors-Thy, en eftir fyrstu umferðina liggur fyrir að Valsmenn byrjuðu af miklum krafti. Þeir unnu Mors-Thy með ellefu marka mun og sitja á toppi riðilsins fyrir leik kvöldsins.

Zorman hefur einnig bent á að ferðalögin í riðlinum geti haft sitt að segja.

„Við munum mæta ólíkum leikstílum og löngu ferðalögin til Danmerkur og Íslands munu einnig krefjast mikils tíma, orku og tauga.“

Slovan og Valur mætast í Hala Tivoli í Ljubljana og hefst leikurinn klukkan 16:45 að íslenskum tíma. Verður hann sýndur í beinni á Livey.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top