Á Jóni svo ótrúlega mikið að þakka
ÍBV

Sænski markvörðurinn Cornelia Hermannsson gekk á dögunum í raðir ÍBV eftir langvarandi og erfið meiðsli sem héldu henni frá handboltanum um tíma. Cornelia, sem áður lék með Selfossi, segir að félagaskiptin til Vestmannaeyja hafi gerst með skömmum fyrirvara en hún hafi strax fundið að þar væri kjörið tækifæri til að snúa aftur á handboltavöllinn.

Cornelia ræddi við Handkastið um félagaskiptin, endurkomuna eftir meiðslin og samband sitt við Jón Þórarin Þorsteinsson, markvörð FH, sem hefur reynst henni mikilvægur stuðningur í gegnum erfiða tíma.

„Allt í kringum félagaskiptin til Eyja gerðist mjög seint og gekk ótrúlega hratt fyrir sig. En strax í fyrsta símtalinu við ÍBV fann ég að þetta væri frábært tækifæri til að snúa aftur í handboltann eftir löng og erfið meiðsli. Að koma inn í umhverfi með frábærum leikmönnum og félagi sem vill alltaf vera á toppnum,“ sagði Cornelia við Handkastið.

Hún viðurkennir að það hafi verið ákveðin áskorun að koma inn í nýtt lið eftir að tímabilið var þegar hafið.

„Það er alltaf erfitt að koma inn í nýtt lið þegar tímabilið er byrjað en stelpurnar hafa tekið mér ótrúlega vel. Auðvitað tekur það samt tíma að aðlagast nýjum aðstæðum.“

Cornelia leggur áherslu á að sýna þolinmæði eftir langa fjarveru frá handboltanum.

„Aðalmarkmiðið mitt núna er að koma mér aftur í gott form, taka skref fyrir skref og byggja upp traust á sjálfri mér. Ég þarf að vera þolinmóð og átta mig á því að þetta getur tekið tíma eftir að hafa verið frá handboltanum svona lengi. Markmiðið er auðvitað alltaf að vera í toppbaráttunni sem lið og ég ætla að leggja mitt af mörkum til þess.“

Cornelia segir að það sé sérstök upplifun að vera komin til Vestmannaeyja, þar sem ferðalögin og aðstæður séu ólíkar því sem hún hefur áður kynnst.

„Allt er nýtt fyrir mér í Vestmannaeyjum, sérstaklega ferðalögin, en það er ótrúlega gaman að vera komin aftur til Íslands og spila með toppliði. Ég hef ekki enn spilað heimaleik en maður finnur strax að Eyjar anda handbolta.“

Fyrsti heimaleikur Corneliu verður á laugardaginn þegar ÍBV fær Fram í heimsókn í stórleik 6.umferðar Olís-deildar kvenna.

Jón Þórarinn stór hluti af endurkomunni

Cornelia er í sambandi með Jóni Þórarni Þorsteinssyni, markverði FH, en þau kynntust þegar þau léku bæði með Selfossi. Hún segir að samband þeirra hafi haft gríðarlega jákvæð áhrif á handboltaferil hennar og ekki síst á erfiðum tímum vegna meiðslanna.

„Við kynntumst þegar við spiluðum bæði á Selfossi og það leið ekki langur tími þar til hann flutti inn til mín. Við fórum fljótlega að æfa mikið saman. Ég held að það hjálpi okkur báðum mikið að vera handboltamarkverðir því við skiljum ýmislegt sem kannski enginn annar skilur.“

Cornelia segir að það sé henni mikils virði að fylgjast með Jóni Þórarni á hans handboltaferðalagi.

„Það er svo hvetjandi að vera honum við hlið á hans handboltaferðalagi og ég er ótrúlega stolt af allri vinnunni sem hann leggur á sig. Hann hjálpar mér á hverjum degi að verða betri handboltamaður. Við reynum alltaf að fara saman í ræktina, fylgjumst með leikjum hjá hvort öðru og styðjum hvort annað í gegnum súrt og sætt.“

Cornelia viðurkennir að fyrir nokkrum mánuðum hafi hún vart þorað að láta sig dreyma um að vera komin aftur á handboltavöllinn.

„Að vera komin til ÍBV og farin að spila handbolta aftur er eitthvað sem ég hefði aldrei trúað að væri mögulegt fyrir nokkrum mánuðum vegna meiðslanna.“

Hún segir Jón Þórarin hafa átt stóran þátt í því að hún sé komin aftur á völlinn.

„Ég á Jóni svo ótrúlega mikið að þakka fyrir að vera komin aftur í handboltann. Hann sá alltaf litlu sigrana, jafnvel á þeim dögum þegar ég átti varla orku til að fara fram úr rúminu.“

„Hann hvetur mig áfram á hverjum degi til að verða betri handboltamaður, gefur mér ráð, styður mig andlega og er einfaldlega alltaf til staðar fyrir mig,“ sagði Cornelia Hermannsson að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top