Púslið sem Eyjaliðið þurfti
ÍBV

Koma Corneliu Hermannsson, markvarðar ÍBV, var til umræðu í síðasta þætti Handboltahallarinnar. Hún lék sinn fyrsta leik fyrir félagið þegar Eyjakonur unnu ÍR 30–26 í toppslag 5. umferðar Olís-deildar kvenna.

„Hún kom með mikilvægar vörslur á lokakaflanum,“ sagði Hörður Magnússon, þáttastjórnandi Handboltahallarinnar.

Einar Ingi Hrafnsson tók undir það og benti á að Cornelia hefði komið inn á þegar staðan var jöfn og tólf mínútur eftir af leiknum.

„Hún ver tvö víti og tekur dauðafæri,“ sagði Einar Ingi áður en Hörður spurði hvort markvörðurinn væri síðasta púslið hjá Eyjakonum.

„Þau hafa allavega verið að bíða eftir henni. Það hefur verið ákveðin óvissa. Maður vissi að hún væri komin en ekki búið að klára leikmannaskiptin og einhver saga var að ganga um að hún væri meidd. En þetta er klárlega púslið sem þær þurftu.“

ÍBV varð með sigrinum fyrsta liðið til að vinna ÍR á tímabilinu. Eyjakonur fá Fram í heimsókn í 6. umferð Olís-deildarinnar í dag, laugardag, klukkan 14:00.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top