Holstebro með sterkan útisigur
(Egill Bjarni Friðjónsson)

Þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni í kvöld í bæði Danmörku og Svíþjóð en bæði Holstebro og Sävehof unnu sterka sigra á meðan Karlskrona þurfti að lúta í lægra haldi á útivelli.

Lærisveinar Arnórs Atlasonar í TTH Holstebro unnu góðan útisigur í dönsku úrvalsdeildinni þegar liðið mætti Kolding en lokatölur í miklum markaleik urðu 37-39. Jóhannes Berg Andrason átti fínan leik fyrir gestina en hann skoraði sex mörk úr níu skotum og gaf fjórar stoðsendingar á meðan Benedikt Gunnar Óskarsson lét lítið fyrir sér fara að þessu sinni. Holstebro sitja í níunda sæti deildarinnar en eru núna aðeins tveimur stigum frá áttunda sætinu sem gefur sæti í úrslitakeppni.

Í Svíþjóð unnu Sävehof gríðarlega sterkan og mikilvægan heimasigur á Malmö en lokatölurnar urðu 30-27. Birgir Steinn Jónsson skoraði eitt mark úr einu skoti og gaf tvær stoðsendingar að auki. Sävehof eru í fjórða sæti deildarinnar með fimmtán stig og aðeins stigi á eftir toppliðunum Alingsås og Malmö.

Karlskrona var einnig í eldlínunni í kvöld en þeir mættu Helsingborg á útivelli. Heimamenn reyndust töluvert sterkari í kvöld og unnu þægilegan sjö marka sigur, 30-23. Karlskrona hafa átt erfitt uppdráttar að undanförnu og sitja í ellefta sæti deildarinnar með aðeins sjö stig, sex stigum frá topp átta sem gefa þátttökurétt í úrslitakeppnina. Arnór Viðarsson skoraði tvö mörk úr fjórum skotum, gaf fjórar stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki fyrir gestina í kvöld.

Úrslit kvöldsins:

Kolding 37-39 Holstebro

Sävehof 30-27 Malmö

Helsingborg 30-23 Karlskrona

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top